| Velkomin á heimasíðuna okkar |
| Við erum bræðurnir Þórhallur Einar og Bergþór Óli :) |
|
|
Ég Þórhallur Einar fæddist þann 16 apríl 2007 á LSH. Og ég var 16 merkur (3,975g) og 53cm. Ég Bergþór Óli fæddist þann 4 okt 2010 á LSH. Og ég var 15 hálf mörk (3,775) og 52 cm. Mamma okkar heitir Kristín Jónsdóttir (83) og pabbi okkar heitir Daði Bergþórsson (75) og eigum við heima í Sandgerði. Þau eru voða stolt af okkur:) |
|
|
Annað:
Barn í hrútsmerki Barn í hrútsmerki er algjör orkubolti, sem þú sérð skjótast hingað og þangað og er alltaf að. VÁ! Vonum bara að þú náir að fylgja því eftir. Þetta barn er frumkvöðull að eðlisfari og elskar að prófa og kanna og býr yfir mikilli orku. Athafnir eftir skóla eru algjör nauðsyn fyrir þetta barn, t.d. íþróttir og útivera. Íþróttir eru í raun mjög góður kostur fyrir hrútinn því að þetta eru yfirleitt kappsfullir einstaklingar að eðlisfari. Þar sem börn í hrútsmerki eru hvatvís þá eru þessi börn oft svolítið erfið fyrir kennarann að höndla og getur verið erfitt að hafa mörg börn í bekknum sem eru í hrútsmerkinu. Hrúturinn er alltaf að prófa eitthvað nýtt og er hugrakkur og er því ávallt með marbletti og skeinur eftir klifur í trjám eða öðru slíku. Það er ljóst að barn í hrútsmerkinu er ekki fyrir hjartveika foreldra. Mikilvægt er að barnið upplifi sig sjálfstætt og ef þú ert að passa upp á það skaltu reyna komast hjá því að það sjái það. Þetta barn vill gera allt sjálft. Að lokum, barn í hrútnum veit ekki hvað það er að hægja á sér, svo að það er betra fyrir þig að venjast snöggum hreyfingum. Gott að fylgjast með sykurinntekt þessara barna og hafa í lágmarki, því trúðu mér þessi börn hafa næga orku fyrir. NAFNIÐ MITT MERKIR! Þórhallur:Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "hallur" sem merkir steinn. Einar:Nafnið Einar er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji. ELSKU MAMMA OG PABBI... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. MAMMA ER KONAN: ...Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir manni alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, eins og td. að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er svo vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI! PABBI ER MAÐURINN: ...Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI! Löngu áður en barnið lærir að tala lærir það að beita persónutöfrunum. ÞAR SEM ERU BÖRN ÞAR RÍKIR GULLÖLD Hve töfrandi er ekki þessi ungbarnshlátur,með spékoppum og glampa í augum-svo undarlega innilegur og saklaus. Barn kostar meira en nokkuð annað á jarðríki. Alla ást þína, allt líf þitt. |
| Þú ert gestur nr. 18127 |